Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

Komið nóg af yfirgangi Landsvirkjunar.

Gaman að sjá hve margir gerðu sér ferð til að mæta á fundinn. Hefði viljað fara sjálfur en komst ekki.

Skilst á fólki þarna á svæðinu að urgur sé í mönnum út af þessum áformum. Fólk er hrætt við að sagan endurtaki sig frá Blönduvirkjun þegar heilu jarðirnar og jarðpartarnir voru tekin eignarnámi og tilhlýðilegar bætur fengust ekki. Annars skiptir það ekki máli hjá öllum fólk er ekki sátt hvernig vaðið er yfir það á skítugum skónum og því næstum því drekkt í jökulvatni. Lítum til dæmis á hvernig fer fyrir bóndanum í Akbraut. Það er ekki nóg með að stór hluti af jörðinni, ræktuðum túnum, fari undir vatn heldur á stöðvarhús og fleiri byggingar að standa þar sem íbúðarhúsið hans útihús standa. Honum er bókstaflega bolað í burtu.

Þegar Blönduvirkjun var byggð tók einstaka bóndi sig til og lýsti óánægju sinni með því að sprauta úr haugsugum yfir bílana hjá herrunum hjá Landsvirkjun, grýtti þá, strengdu keðjur yfir vegina og fleira skemmtilegt.

Talandi um skemmdarverk þá má ekki gleyma þegar bændur í Aðaldal sprengdu stífluna í Laxá. Það er spurning um að fara taka upp svona aðgerðir Woundering

Ingibjörg Sólrún sagði fyrir stuttu að þau í X-S ætluðu að koma í veg fyrir þessar framkvæmdir. Ef þau geta sýnt fram á að það sé raunhæft þá held ég að ég vendi mínu kvæði í kross og kjósi X-S.Shocking


mbl.is Troðfullt í Árnesi á fundi gegn virkjunum neðri hluta Þjórsár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðerniskennd og handbolti.

handballStórkostlegur sigur gegn franska landsliðinu í gær. Það er alltaf jafn gaman þegar svona lagað gerist. Þvílík samstaða hjá liðinu.

Þjóðin stendur saman sem aldrei fyrr þegar svona vel gengur. Maður fyllist stolti og þjóðerniskenndin flæðir um líkamann, ef það má orða það svo.

Á svona stundu þá hugsa ég alltaf: "Djöfuls vitleysa að hætta að æfa handbolta þegar ég var unglingur. Ég sem var svo efnilegur."  Ég þótti gríðarlega efnilegur í vörn, fékk tvisvar sinnum brottvísun í fyrsta leiknum mínum á Legomótinu í Mosfellsbæ og rauða spjaldið í þeim næsta. En batnandi mönnum er best að lifa. Á næsta móti fékk ég ekki eina brottvísun heldur fékk dæmt vítakast þegar ég var að brjótast í gegnum hina gríðarsterku vörn ÍR strákana. Að sjálfsögðu tók ég sjálfur vítakastið. Stillti mér upp á vítapunktinn og skaut boltanum efst í hægra hornið, þvílíkt mark! "Nei nei nei alveg rólegur kallinn minn" kallaði dómarinn. "Ekki fyrr en ég flauta." bætti hann við. Jæja, þetta var hálf vandræðalegt og setti mig út af laginu. Svo gall flautan og ég dúndraði boltanum í átt að markinu. Markmaðurinn átti ekki séns í boltann enda fór hann svo hátt yfir markið að Lego auglýsingaskiltið, sem hékk yfir markinu, hreyfðist úr stað. En ég var nú bara 10 ára þegar þetta átti sér stað. Wink

Næstu 4 ár sem ég stundaði handboltann gengu mun betur fyrir sig og ég passaði mig á því að taka vítaskotin hjá mér til sérstakrar endurskoðunar bætti þau til muna.

Þess vegna hugsa ég alltaf þegar ég horfi á íslenska landsliðið í handbolta: "Maður gæti nú verið þarna. Í það minnsta sem áhorfandi fullur af þjóðerniskennd.Smile

 


Heilbrigð æska

Ánægður með þessa ungu drengi sem halda í gamlar og skemmtilegar hefðir. Tek ofan fyrir þeim. Ekki er ég viss um að margir hafa leikið sama leikinn. Eitt er víst að ég gerði það ekki.

En það er orðið opinbert.....ég fékk ekki eitt atkvæði í kosningunni um kynþokkafyllsta karlmann landsins.........enn leiðinlegtLoL


mbl.is Skólapiltar heilsuðu þorra á brókinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bóndadagur

Ekki fékk ég bóndadagsgjöf frá minni heittelskuðu. Enda hljóp ég ekki í kringum bæinn (blokkina) á brókinni einni fata. Glætan að ég myndi gera það í þessum kulda sem nú næðir um. En bændur, hér áður fyrr, áttu að fara fyrstir á fætur, hoppa á öðrum fætinum í kringum bæinn, berir á ofan og aðeins klæddir í aðra skálmina, dragandi hina á eftir sér. Sem sagt þeir áttu að fagna Þorra. Það væri skondið að sjá ef þessi siður væri tekinn upp aftur í nútímanum.

Fyrsti dagur í Þorra var líka tími mannfagnaðar og áts. Þess vegna ætla ég að halda veislu í kvöld.....og bjóða upp á eitthvað annað en Þorramat.W00t

Ætla að hlusta á Rás 2 í dag og fylgjast með hver verður kosinn sá kynþokkafyllsti. Vona að einhver hringi inn og kjósi migGrin. .....


Ný sýn í öryggis-og varnarmálum Íslands

                                                                                                                   skj

Fór í dag á fund í HÍ þar sem Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, flutti erindi um þróun öryggis- og varnarmála.

Fundurinn var áhugaverður og gaman að heyra hvað ráðherran virtist áhugasamur um varnarmálin. Eitt stakk mig þegar hún talaði um mýkta ásýnd friðargæslunnar. Þar sagði hún að þjóðir ættu að einbeita sér að því sem þær væru bestar í. Þá vaknaði sú spurning hjá mér hvort henni þætti störf vopnaðrar friðargæslu og "jeppagengja", eins og hún kallaði það, óviðunandi.

Ef svo er raunin þá er ég mjög ósammála henni. Hún talar um að við eigum að einbeita okkur að því sem við erum best í. Sem dæmi má nefna að íslenskir friðargæsluliðar í Afganistan eru taldir sinna starfi sínu af þvílíkum sóma að stórþjóðir eins og Þýskaland, Holland, Kanada, Noregur og fleiri þjóðir eiga ekki til orð yfir dugnaði, færni og þjálfun íslensku friðargæsluliðanna. Haldin var keppni á milli friðargæsluliðanna og viti menn....að sjálfsögðu unnu Íslendingarnir hina þrautþjálfuðu hermenn frá hinum þjóðunum. Jepparnir sem notaðir eru fara mun lengra og nýtast víst mun betur en búnaður hinna þjóðanna.

Það á ekki að láta heimsku og eiginhagsmuni eins af yfirmönnum liðsins skemma fyrir öllum þeim góðu starfsmönnum sem sinna vopnaðri friðargæslu og "jeppamennsku". Fyrir þá sem átta sig ekki á hvaða heimska yfirmann ég er að tala um þá er ég að tala um gaurinn sem fór inn í borgina til þess að kaupa sér teppi þrátt fyrir að hafa verið varaður því að fara af næsta undirmanni sínum.

Hún talaði um að ekki yrði stofnaður her hér á landi. OG??? Hvernig ætti 300.000 manna þjóð að fara að því að stofna her. Hermál eru einhver dýrasti útgjaldaliður hjá vopnuðum þjóðum þannig að ég skil ekki þessa hræðslu hjá fólki við það að stofna her. Wake up, það mun aldrei gerast.

Svo talaði hún um að fjölga konum í friðargæslunni þannig að þær yrðu til jafns á við karla. Flott mál. Ef einhver nennir að standa í þessu friðargæslustússi þá er það fínt. Því ekki nenni ég því.

Og leyniskjölin. Hún talaði um að hún hefði létt leynd af viðaukum við varnarsamningin frá því 1951. Það fór kliður um salinn þegar hún sagði frá þessu og mér rann kalt á milli skins og hörunds. Ég hélt um stund að ég væri að verða vitni að mikilli uppljóstran. En nei í spurningatímanum sagði ráðherrann einfaldlega: "Þetta er ekki eins juicy og þið haldið" og allir hlógu með.

Sem sagt ágætis fundur.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband